föstudagurinn 27. janúar 2012
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 145
Samtals: 1241039
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
Sparisjóšur Svarfdęla
N1
Oddi
KEA
Mynd augnabliksins
Śrvalssveitin
Śrvalssveitin
Póstlistaskrįning
Netfang:

Afskrį

Könnun
Kemur fjölskyldan žķn ķ įr
Jį, saman
Nei žvķ mišur

Sjį allar
Fiskidagurinn mikli 2011

Fiskidagurinn mikli 5 -  6. ágúst 2011 

Fiskur  -  Vinalegheit  -  Fiskisúpukvöldið -  Fjölskylduhátíð  -  Allt frítt á hátíðarsvæðinu 

Mynd Jón Ingi Einarsson

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldinn hátíðleg í Dalvíkurbyggð, fyrsta laugardag eftir Verslunarmannahelgi. Fiskverkendur og fleiri framtakssamir í byggðarlaginu bjóða, með hjálp góðra styrktaraðila, landsmönnum öllum upp á dýrindis fiskrétti, milli kl. 11:00 og 17:00. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. 
Matseðilinn breytist ár frá ári þó ávallt sé boðið upp á ákveðna vinsæla rétti. Af þeim er helst að nefna fiskborgarana sem grillaðir eru á lengsta grilli á Íslandi. Grillið er færiband og á því stikna borgararnir 8 metra leið. Á fjórtán grillstöðvum víða um svæðið grilla heimamenn fjölbreyttar fisktegundir. Öllum réttum fylgja brauð og drykkir eins og hver getur í sig látið. Kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla bjóða íbúar byggðalagsins gestum og gangandi upp á fiskisúpu í heimahúsum og görðum. Afar vönduð og fjölbreytt skemmtidagskrá hefur prýtt hátíðina. 

KÍKIÐ ENDILEGA Á ELDRI FRÉTTIR

Nżjustu fréttir
Allar > 11.08.2011 08:00 -
Fréttatilkynning eftir Fiskidaginn mikla

ü      Ljúft súpukvöld þar sem um 19.000 manns röltu um bæinn. 
ü      Mögnuð og fagmannleg flugeldasýning. 
ü      Fjöldaknús á vel heppnaðri Vináttukeðju. 
ü      4 kempum færðar þakkir. 
ü      Fiskidagurinn mikli styrkir Mæðrastyrksnefnd. 
ü      Áhugavert met – 65 mínútur. 

Talið er að um 29.000 manns hafi sótt Dalvíkurbyggð heim um helgina en þar var Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur. Umferð gekk vel miðað við fjölda. Afar lítið  var um árekstra milli fólks í næturlífinu og gekk það nánast áfallalaust þrátt fyrir mikið líf og að margir væri á ferðinni. Bærinn var ríkulega skreyttur og töldu margir að ganga um bæinn væri eins og að vera á risastórri skraut og listasýningu.

 


Allar > 11.08.2011 08:00 -
Fiskidagsręša Atla Rśnars
Ágætu matargestir og gestgjafar:

Þegar Júlli Fiskidagsfrömuður bað mig að segja fáein orð hér og nú svaraði ég því til að ég væri ekki forritaður til að flytja hátíðarræður. Það væri helst á færi bæjarstjóra, presta, menningarvita eða einhverra slíkra. Hann svaraði því til hið eina sem ég þyrfti að gera væri að tala vel um Dalvík og Dalvíkinga og svo mætti einhver vitleysa fylgja með.

Fyrst forskriftin var ekki flóknari en svo sló ég til því það er mér bæði heiður og ánægja að fá að tala vel um sveitunga mína. Reyndar er það svo að ég er hér í áttunda sinn á Fiskideginum mikla og hef hlustað endalaust talað vel um Dalvíkinga allt í kringum mig á tjaldsvæðinu. Dalvíkingar sjálfir heyra minnst af þessu hóli, enda eru þeir önnum kafnir að skreyta híbýlin, mála, þvo og skrúbba, bragðbæta súpur með koníaki og gera allt það sem þeir geta til að við, gestir þeirra, getum haft það sem notalegast. 




Allar > 09.08.2011 08:00 -
Flugeldasżning 2011
Flugeldasýning Fiskidagsins mikla í boði Samhera. Björgunarsveitin á Dalvík á mikið lof skilið fyrir mikla, góða og fagmannlega vinnu við Fiskidaginn mikla og flugeldasýninguna - Til hamingju Ísland.
Allar > 03.08.2011 08:00 -
Vega

Færeyski kórinn Tvöfaldur kvartettinn “Vega” á aðalsviðinu
Mennirnir níu frá Fuglafirði í Færeyjum hafa sungið saman í nokkur ár, mest til gamans. Kringum jólahátíðirnar hafa þeir þó sungið á dvalarheimilum fyrir aldraða í Eysturoy og á Norðoyggjum, og stundum hafa þeir verið beðnir um að syngja við hin ýmsu tilefni.
Mennirnir í tvöfalda kvartettinum “Vega” heita: Kristian Petersen, Heini Beder, Hjalti Lundsbjerg, Jógvan á Lakjuni, Samson í Lambanum , Jan Joensen, Páll Laksáfoss, Mouritz L. Mohr og Eyðun á Lakjuni.


Allar > 03.08.2011 08:00 -
Sķminn
Síminn er nýr aðalstyrktaraðili Fiskidagsins mikla enda eiga þessir risar sem þjóna mörgum vel saman. Hann Villi okkar er hér í frábærum auglýsingum sem við skorum á ykkur að líta á:

Súpa:  
http://www.youtube.com/watch?v=KBi_VJCfQ14
Jóhann Svarfdælingur: http://www.youtube.com/watch?v=Km2Z124c8t8 

Munið að þið getið fengið dagskrá Fiskidagsins í símann ykkar ásamt gómsætum súpuuppskriftum
.
 
M.siminn.is -> Meira Ísland -> Norðurland Eystra -> Fiskidagurinn Mikli

Skoša allar fréttir